Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skriðustekkur 23

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 9. október 2009 var lögð fram tillaga um breytt deiliskipulag Breiðholt 1, neðra Breiðholt vegna lóðarinnar að Skriðustekk 17- 23 skv. meðfylgjandi uppdrætti. Breytingin felst í viðbyggingu á suðurhlið hússins að Skriðustekk 23. Tillöguna má einnig sjá á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir mál í kynningu.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Skriðustekk 17, 19, 21, 25 og 27.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði. Verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 10. nóvember og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 8. desember 2009.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Þórarinn Þórarinsson