Tunguvegur 19
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 11. desember 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Sogavegar vegna lóðarinnar nr. 19 við Tunguveg. Í breytingunni felst m.a. að gera byggingarreit á norðurhluta lóðarinnar, færa tvö bílastæði sem eru við götu inn á lóð og fleira samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti Arkhús ehf., dags. 2. desember 2009.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Garðsenda 17 og 21, Sogavegi 212 og 216, Tunguvegi 19A og 20 og Skógargerði 1A.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson Símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl 9 og 10.
Kynning hefst þann 17. desember og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 14. janúar nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Þórarinn Þórarinsson