Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Njarðargata 25

Njarðargata 25, breyting á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 4. desember 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Nönnugötureits vegna lóðarinnar nr. 25 við Njarðargötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.

Uppdráttur (PDF)

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Urðarstíg 13 og 15, Nönnugötu 14 og 16 og Fjölnisveg 2.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviðsi, verkefnisstjóri er Margrét Þormar símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 6. janúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 3. febrúar nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Margrét Þormar