Bræðraborgarstígur 30, Holtsgata 1-3
Bræðraborgarstígur 30, Holtsgata 1-3, breyting á deiliskipulagi
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 16. október 2009 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Holtsgötureitar vegna lóðanna nr. 30 við Bræðraborgarstíg og Holtsgötu 1-3. Í breytingunni felst stækkun á 4. hæð til suðurs húsi nr. 30 við Bræðraborgarstíg samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Uppdráttur (PDF)
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Bræðraborgarstíg 31 og 32 ásamt Holtsgötu 5 og 7b.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Margrét Þormar, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.
Kynning hefst þann 6. janúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 3. febrúar nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar