Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skipasund 56

Skipasund 56, breyting á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 18. desember 2009 var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sunda reitur 1.3 og 1.4 vegna lóðarinnar nr. 56 við Skipasund. Í breytingunni felst m.a færsla á byggingarreit samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.

Uppdráttur (PDF)

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum

hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Skipasundi 49, 51, 53, 54 og 58 ásamt Efstasundi 63 og 65.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Gunnhildur S. Gunnarsdóttir símatími þriðjudaga og föstudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 6. janúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 3. febrúar nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Gunnhildur S. Gunnarsdóttir