Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Vogar-sunnan Skeiðarvogs

Til fasteignaeigenda og hagsmunaaðila í Vogahverfi við eftirfarandi götur: Langholtsvegur 131 – 208, Gnoðavogur 44 – 88,

Barðavog, Eikjuvog, Nökkvavog, Karfavog, Snekkjuvog og Ferjuvog.

Hagsmunaaðilakynning: Vogahverfi sunnan Skeiðavogs.

Á fundi skipulagsráðs 13. janúar 2010 var lögð fram tillaga Hús og skipulag ehf. að deiliskipulagi Voga, sunnan Skeiðarvogs, dags. mótt. 8. janúar 2010.

Skipulagsráð samþykkti að kynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

Eitt helsta viðfangsefni væntanlegs deiliskipulags á þessum reit er að stuðla að varðveislu hverfisins sem heildsteypts skipulagsreits sem endurspeglar með skýrum hætti hluta skipulagssögu borgarinnar.

Með gerð deiliskipulagstillögunnar er reynt að móta framtíðarsýn um uppbyggingu, verndun og landnotkun á svæðinu. Í tillögunni má finna hverjar uppbyggingarheimildir eru á hverri lóð fyrir sig og leiðbeiningar um hvernig er best að möguleg uppbygging skuli vera og tryggja þannig að þær breytingar falli vel að byggðarmynstri svæðisins. Markmið tillögunnar er einnig að styrkja innviði hverfisins með skýrari göngu- og hjólaleiðum og bættu umhverfi við verslunar og þjónustulóðir.

Deiliskipulagstillagan fyrri uppdráttur (PDF)

Deiliskipulagstillagan seinni uppdráttur (PDF)

Hagsmunaaðilum er hér með gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna tilskipulagsstjóra Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík og á netfangið skipulag@reykjavik.isfyrir 15. febrúar 2010.Merkja skal ábendingarnar: “Vogahverfi sunnan Skeiðavogs”

Móttakandi þessa bréf er beðinn um að koma efni þess á framfæri við þá sem kunna að vera hagsmunaðilar á svæðinu en eru ekki með aðsetur þar, eða hefur af öðrum ástæðum ekki borist bréfið.

 

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda tölvupóst á bragi.bergsson@reykjavik.is eða hringja á tilgreindum símatíma á þriðjudögum og föstudögum milli kl. 9 og 10.

 

Eftir þessa hagsmunaaðilakynningu verður deiliskipulagstillagan yfirfarin í samræmi við þær ábendingar sem bárust úr kynningunni, að því loknu verður svo lögð fram fullunnin deiliskipulagstillaga sem verður auglýst samkvæmt lögum.

F.h. skipulagsstjóra Reykjavíkur

Bragi Bergssson, verkefnisstjóri.

bragi.bergsson@reykjavik.is skipulag@rvk.is