Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Álftamýri 59-75

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 12. mars 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Álftamýris vegna lóðanna nr. 59 - 75 við Álftamýri. Í breytingunni felst stækkun á kjallarými samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti, dags. 12. mars 2010.

Deiliskipulagstillagan: (PDF)

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Starmýri 2, 4 og 8.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkekfnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson. Símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 17. mars og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 17. apríl nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Þórarinn Þórarinsson