Hagsmunaaðilakynning: Teigahverfi norðan Sundlaugavegar
Til fasteignaeigenda og hagsmunaaðila á reitum 1.346 og 1.347.
Reiturinn afmarkast af Sundlaugavegi til suðurs, Laugalæk til norðausturs og byggð við Laugarnesveg. Innan reits er einnig að finna byggingar sem standa við Otrateig og Hrísarteig.
Hagsmunaaðilakynning: Teigahverfi norðan Sundlaugavegar
Á fundi skipulagsráðs 10. mars 2010 var lögð fram tillaga Egg arkitekta ehf. dags. desember 2009 að deiliskipulagi Teigahverfi norðan Sundlaugavegar. Skipulagsráð samþykkti að kynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.
Eitt helsta viðfangsefni væntanlegs deiliskipulags á þessum reit er að stuðla að varðveislu hverfisins sem skipulagsreits og endurspegla skipulagssögu borgarinnar.
Með gerð deiliskipulagstillögunnar er reynt að móta framtíðarsýn um uppbyggingu, verndun og landnotkun á svæðinu. Í tillögunni má finna hverjar uppbyggingarheimildir eru á hverri lóð fyrir sig og leiðbeiningar um hvernig er best að möguleg uppbygging skuli vera og tryggja þannig að þær breytingar falli vel að byggðarmynstri svæðisins. Markmið tillögunnar er einnig að styrkja innviði hverfisins með skýrari göngu- og hjólaleiðum og festa í sessi verslun og þjónustu innan hverfisins og stuðla að bættu umhverfi .
Uppdráttur 1 (PDF)
Uppdráttur 2 (PDF)
Uppdráttur 3 (PDF)
Deiliskipulagstillöguna má skoða á heimasíðu Skipulags- og byggingarsviðs www.skipbygg.is undir "Mál í kynningu" eða í þjónustuveri á 1. hæð í Borgartúni 12-14 virka daga frá 8.20-16.20. Jafnframt er bent á Húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur, Skýrsla nr. 150 dags (PDF). 2009, sem er hluti af skipulagsgögnum.
Hagsmunaaðilum gefst hér kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna til Skipulagsstjóra Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík og á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 7. júní 2010. Merkja skal ábendingarnar: "Teigahverfi norðan Sundlaugavegar"
Móttakandi þessa bréfs er beðinn um að koma efni þess á framfæri við þá sem kunna að vera hagsmunaðilar á svæðinu en eru ekki með aðsetur þar, eða hefur af öðrum ástæðum ekki borist bréfið.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda tölvupóst á gunnhildur.s.gunnarsdottir@reykjavik.is eða hringja á tilgreindum símatíma á þriðjudögum og föstudögum milli kl. 9 og 10.
Eftir þessa hagsmunaaðilakynningu verður tillaga að deiliskipulagi yfirfarin í samræmi við þær ábendingar sem bárust úr kynningunni, að því loknu verður svo lögð fram fullunnin deiliskipulagstillaga sem verður auglýst samkvæmt lögum.
F.h. Skipulagsstjóra Reykjavíkur
Gunnhildur Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri.
skipulag@rvk.is