Logafold 49
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 25. júní 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, áfanga 6 vegna lóðarinnar nr. 49 við Logafold. Í breytingunni felst að útgrafinn kjallari er tekinn í notkun sem hluti íbúðar, samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti VA Arkitekta dags. 23. júní 2010.
Deiliskipulagstillagan (PDF)
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Logafold 47 og 51.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Guðfinna Ósk Erlingsdóttir, símatími þriðjudaga og föstudaga milli kl 9 og 10.
Kynning hefst þann 7. júlí nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 5. ágúst 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Guðfinna Ósk Erlingsdóttir