Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Háagerði 19

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 9. júlí 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Háagerði 1-79 og Sogavegur 98-106 vegna lóðarinnar nr. 19 við Háagerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir viðbyggingu er færður samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti Bjargeyjar Guðmundsdóttur dags. 21. júní 2010.

Deiliskipulagstillagan: (PDF)

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Háagerði 21 til 29, ójöfn númer.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Margrét Þormar (Þórarinn Þórarinsson í sumarfríi), símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 14. júlí nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 12. ágúst 2010

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Margrét Þormar