Grundarstígsreitur
ATH: Athugasemdarfrestur framlengdur til 2. september 2010.
Til hagsmunaaðila á staðgreinireit 1.183.3 sem markast af Grundarstíg, Skálholtsstíg, Þingholtsstræti og Spítalastíg, vinnuheiti "Grundarstígsreitur".
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur ákveðið að vinna deiliskipulag af ofangreindum reit en í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 kemur fram að allt land er talið skipulagsskylt. Með hlíðsjón af þeirri ákvörðun hefur embætti skipulagsstjóra unnið skipulagsforsögn þar sem fram koma m.a. markmið borgaryfirvalda vegna skipulagsvinnunnar.
Forsögnin er dagsett í júní 2010 og hefur skipulagsráð Reykjavíkur samþykkt hana og ákveðið að láta kynna fyrir þeim hagsmunaaðilum sem búa á svæðinu og óska eftir ábendingum og athugasemdum.
Forsögn: (PDF)
Megintilefni deiliskipulagsvinnunar sem nú er að hefjast er það að eigendur hússins Grundarstígs 10 hafa óskað eftir því að fá að breyta húsinu úr íbúðahúsi í stofnunina, Hannesarholt. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ætlunin að vera með listviðburði og fræðslufundi í húsinu, litla kaffisölu án áfengisveitinga og aðstöðu til fræðastarfa. Einnig var ráðgert að breyta húsinu lítillega að utan. Var erindi eigenda samþykkt af Reykjavíkurborg eftir málsmeðferð í samræmi við ákvæði skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 um ódeiliskipulögð svæði. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála féllst ekki á að heimilt væri að fara með umsóknina samkvæmt þeirri reglu og var leyfið fellt úr gild. Til að koma til móts við athugasemdir úrskurðarnefndarinnar um rétta málsmeðferð hefur nú verið ákveðið að deiliskipuleggja reitinn og leggja m.a. til að heimilað verði að reka tilgreinda starfsemi á lóðinni nr. 10 við Grundarstíg. Skoðun skipulagsyfirvalda í Reykjavík hefur verið sú að starfsemin falli vel að umhverfinu og muni verða til þess að glæða hverfið lífi og menningu. Stefna skipulagsyfirvalda á þessu svæði verður áfram sú að halda skal í mælikvarðann sem fyrir er í byggðinni.
Þegar tillaga að deiliskipulagi liggur fyrir verður hún sérstaklega kynnt hagsmunaaðilum og óskað verður eftir athugasemdum þeirra áður en endanleg tillaga að deiliskipulagi verður auglýst á lögformlegan hátt.
Hin samþykkta skipulagsforsögn fylgir með bréfi þessu til kynningar og er jafnframt til kynningar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is, undir liðnum auglýsingar, skipulag í kynningu. Kynning á forsögninni stendur yfir frá 22. júlí til og með 2. september 2010. Á þessum tíma eru hagsmunaaðilar hvattir til að koma á framfæri skriflegum ábendingum, athugasemdum eða fyrirspurnum merktum: Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur, Deiliskipulag Grundarstígsreits, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið: skipulag@rvk.is.
Ábendingar hagsmunaaðila verða rýndar við vinnslu deiliskipulagstillögunnar. Ef einhverjar spurningar vakna er þeim góðfúslega svarað á símatíma mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10, eða í tölvupósti margret.thormar@reykjavik.is
F.h. skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur,
Margrét Þormar arkitekt