Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Leirulækur 6

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 23. júlí 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits vegna lóðar nr. 6 við Leirulæk. Breytingin gengur út á að koma fyrir byggingarreit fyrir færanlegar stofur á lóð leikskólans.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Rauðalæk 22 - 44, jafnar tölur og Dalbraut 12.

Tillagan (PDF)

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 08:20-16:15. Tillöguna má einnig sjá (og prenta út) á heimasíðu sviðsins undir skipbygg.is, auglýsingar, skipulag í kynningu.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Gunnhildur Gunnarsdóttir, símatími milli kl. 9 og 10 þriðjudaga og föstudaga.

Kynning hefst þann 27. júlí nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 25. ágúst 2010.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Gunnhildur Gunnarsdóttir