Bauganes 22
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 23. júlí 2010 var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðar nr. 22 við Bauganes skv. uppdrætti, dags. 25. febrúar 2008, endurútgefinn þann 27. júlí 2010. Tillagan var áður grenndarkynnt frá 17. mars til 16. apríl 2008, samþykkt 25. apríl 2008 og öðlaðist gildi 2. júní 2008. Sú samþykkt hefur verið felld úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 6. júlí 2010. Í ljósi þess hefur verið samþykkt að endurnýja grenndarkynninguna fyrir sömu hagsmunaaðilum og áður. Tillagan er að öllu leyti óbreytt efnislega, enda var samþykktin felld úr gildi vegna galla á málsmeðferð. Meðfylgjandi er afrit af uppdrætti og úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Í ljósi ofangreinds er því nú eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna, með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997: Húseigendum að Bauganesi 16, 20, 24, 26 ásamt Skildinganesi 41 og 43.
Skoða tillögu (PDF)
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur, verkefnisstjóri er Margrét Þormar, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.
Kynning hefst þann 30. júlí nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 30. ágúst 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar