Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Grensásvegur 62

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 6. ágúst 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi lóðar Grensásdeildar Landspítalans nr. 62 við Grensásveg skv. meðfylgjandi uppdrætti, dags. 23. júlí 2010. Tillaga að breytingu gengur út á að byggja opið skýli yfir bílastæði fatlaðra á lóð og breyta fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni sunnan megin við aðalbyggingu. Ekki er um neina stærðaraukningu að ræða.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Brekkugerði 16 og 18, Espigerði 2 ásamt Furugerði 1 og 3. Forsvarsmenn húsfélags að Espigerði 2 eru vinsamlega beðnir um að hengja upp og/eða kynna meðfylgjandi gögn, bréf og uppdrátt, fyrir eigendum. Tillögu má einnig sjá á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir auglýsingar, skipulag í kynningu. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Skoða tillögu (PDF)

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10. Kynning hefst þann 11. ágúst nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 8. september 2010. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.