Þingás 36
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 6. ágúst 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Suður-Selás vegna lóðar nr. 36 við Þingás skv. meðfylgjandi uppdrætti, dags. 15. júlí 2010. Breytingin felst m.a. í stækkun byggingarreits og auknu byggingarmagni á lóð.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Þingás 34 og 38. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, hverfisarkitekt er Lilja Grétarsdóttir, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.
Skoða tillögu (PDF)
Kynning hefst þann 11. ágúst nk og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 8. september 2010. Tillögun má einnig sjá á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir auglýsingar, skipulag í kynningu. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.