Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Jöldugróf 13

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 13. ágúst 2010 var lögð fram tillaga Argos ehf. dags. 11. júlí 2010 um breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðarinnar að Jöldugróf 13. Í breytingunni felst að stækkaður er byggingarreitur vegna sólstofu. Meðfylgjandi er afrit af tillögu.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Jöldugróf 11 og 15.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Deiliskipulagstillagan (PDF)

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Þórarinn Þórarinsson, símatími mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9 og 10.

Kynning hefst þann 18. ágúst nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 15. september 2010.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Þórarinn Þórarinsson