Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisgata 71

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 20. ágúst 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðar nr. 71 við Hverfisgötu samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Breytingin gengur út á að húsið standi áfram fremst á lóðinni og að viðbygging verði rifin og ný byggð í hennar stað.

Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Deiliskipulagstillagan: (PDF)

Húseigendum að Lindargötu 56, 58 og 60 ásamt Hverfisgötu 69, 72, 73 og 74.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, Verkefnisstjóri er Margrét Þormar. Símatími mánudaga og fimmtudaga milli 9 og 10.

Kynning hefst þann 25. ágúst 2010 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 22. september nk.

Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra

Margrét Þormar