Esjugrund 33
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 20. ágúst 2010 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Grundarhverfis vegna lóðar nr. 33 við Esjugrund skv. meðfylgjandi uppdrætti. Breytingin felst í því að gerður er byggingarreitur fyrir sólstofu.
Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Deiliskipulagstillagan: (PDF)
Húseigendum að Víkurgrund 10 og Esjugrund 23 og 35.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Gunnhildur S. Gunnarsdóttir. Símatími þriðjudaga og föstudaga milli 9 og 10.
Kynning hefst þann 25. ágúst 2010 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 22. september nk.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Gunnhildur S. Gunnarsdóttir