Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hagsmunaaðilakynning: Vesturvallareitur

Til hagsmunaaðila á reit, sem afmarkast af Vesturvallagötu, Sólvallagötu, Framnesvegi og Holtsgötu, vinnuheiti Vesturvallareitur. Í maí 2001 var hagsmunaaðilum send lýsing til kynningar og voru þeir einnig boðaðir á fund. Haldnir voru tveir fundir, 10. og 11. maí 2011 og mættu alls 6 íbúar á fundina. Nokkrar ábendingar bárust og voru þær athugaðar í deiliskipulagsvinnunni. Lagt er til að leyfa viðbyggingar við Vesturvallagötu 2 og 4. Einnig er lagt til að heimilt verði að hækka húsið að Holtsgötu 25 um eina hæð. Samkvæmt tillögunni verður gert ráð fyrir að skipta lóðinni Sólvallagötu 68 í tvær lóðir, Sólvallagötu 68 og Framnesveg 31B. Enn fremur er lagt til að skipta Sólvallagötu 64 í tvær lóðir, Vesturvallagötu 6 og Sólvallagötu 64.

Skoða tillögu (PDF)

Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, frá 18. nóvember 2011 til og með 9. desember 2011, opið frá kl. 8:20 - 16:15 virka daga. Einnig er hægt að skoða tillöguna á heimasíðu skipulags- og byggingarsviðs www.skipbygg.is undir skipulag í kynningu", Vesturvallareitur. Á þessum tíma er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma á framfæri skriflegum ábendingum, athugasemdum eða fyrirspurnum merktum: Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur, Deiliskipulag Vesturvallareitur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið: skipulag@rvk.is. Ábendingar verða skoðaðar í deiliskipulagsvinnunni og eftir atvikum teknar inn í tillögu. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hringja í síma 411-1111 og verða þá tekin skilaboð til verkefnisstjóra, sem mun hringja í viðkomandi.

F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar arkitekt/verkefnisstjóri