Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Njálsgötureitar 1.190.1, vegna lóðanna nr. 53, 55 og 57

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 9. desember 2011 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureitar 1.190.1 vegna lóðanna nr. 53, 55 og 57. Í breytingunni felst sameining lóðanna, nýtt hús byggt á lóð númer 53, lækkun gólfkóta aðkomuhæðar og stækkun á byggingarreit fyrir svalagang og lyftu o.fl. Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Njálsgötu 51 og 59 ásamt Grettisgötu 50, 52, 54a, 54b, 56a, 56b, 58a og 58b. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Skoða tillögu (PDF)

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði, verkefnisstjóri er Margrét Þormar. Kynning hefst þann 16. desember nk. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 17. janúar 2012. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.