Skeifan 9
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 9. desember 2011 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar/Fenin vegna lóðarinnar nr. 9 við Skeifuna. Í breytingunni felst stækkun húss fyrir nýja viðbyggingu, skv. meðfylgjandi uppdrætti Aðalsteins Júlíussonar dags. 24. nóv. 2011. Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Skeifunni 11. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Skoða tillögu (PDF)
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði. Kynning hefst þann 2. janúar 2012 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 23. janúar 2012. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.
F.h. skipulagsstjóra
Lilja Grétarsdóttir