Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kristnibraut 55-59

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 13. janúar 2012 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, svæði 1 vegna lóðarinnar nr. 55-59 við Kristnibraut. Í breytingunni felst bygging á bílgeymslu við austurmörk lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti Plúsarkitekta ehf. dags. 29. nóvember 2011. Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Kristnibraut 43-47 og 49-53. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Skoða tillögu (PDF)

Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14, 1. hæð, kl. 08:20-16:15. Einnig er hægt að nálgast tillöguna á skipbygg.is undir skipulagsmál. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Skipulags- og byggingarsviði. Kynning hefst þann 20. janúar og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsstjóra skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 17. febrúar nk. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkja hana.

F.h. skipulagsstjóra
Valný Aðalsteinsdóttir