Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hólmsheiði - breytingar á Aðalskipulagi 2001-2024

Tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024

Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br., eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.Tímabundin aðstaða fyrir fisflug í Hólmsheiði. Tímabundin losun ómengaðs jarðvegs í Hólmsheiði

Tillögurnar gera annars vegar ráð fyrir aðstöðu fyrir fisflug á melum sunnan Langavatns og hinsvegar ákveðinni afmörkun á núverandi losunarstað jarðvegs í Hólmsheiðinni.

Í báðum tilvikum er um tímabundna landnotkun að ræða og fela tillögurnar ekki í sér breytingar á langtímastefnu um Hólmsheiðina sem útivistar- og skógræktarsvæði.

Einnig er gerð tillaga um breytingar á stígakerfi vestan og sunnan Langavatns.

Aðalskipulagstillaga - Tímabundin aðstaða fyrir fisflug (PDF)

Umhverfisskýrsla - Tímabundin aðstaða fyrir fisflug (PDF)

Aðaskipulagstillaga - Tímabundin losun ómengaðs jarðvegs (PDF)

Sjá einnig, tillögur að deiliskipulagi og óverulega breytingu á svæðisskipulagi um græna trefilinn

Deiliskipulagstillaga - Tímabundin aðstaða fyrir fisflug (PDF)

Deiliskipulagstillaga - Tímabundin losun ómengaðs jarðvegs (PDF)

Sjá einnig, Svæðisskipulagstillaga

Svæðisskipulagstillaga - Breyting á skilgreiningu græna trefilisins, óveruleg breyting (PDF)

Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 06. júlí 2009.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 13. ágúst 2007. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Reykjavík, 8. maí 2009

Skipulagsstjóri Reykjavíkur