Holtsgata 7b
Á fundi skipulagsráðs þann 6. september sl. var lögð fram tillaga Ragnhildar Ingólfsdóttur, dags. 11. maí 2006, um breytingu á deiliskipulagi Holtsgötureits vegna lóðarinnar nr. 7b við Holtsgötu. Breytingin felst í því að byggt verði raðhús, allt að einni og hálfri hæð, ásamt bílastæðum í bílakjallara eða ofanjarðar á lóðinni þar sem áður var rekinn leikskóli.
Nánar um lýsingu vísast til kynningargagna.
Skipulagsráð samþykkti að áður en kemur að lögformlegu kynningarferli s.s. auglýsingu skyldi kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum á reitnum, í næsta nágrenni og þeim sem gerðu athugasemdir við áður auglýst deiliskipulag Holtsgötureits. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Skoða tillögu (PDF)
Tillagan verður til kynningar í sal Skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 08:20-16:15 og á heimasíðu sviðsins www.skipbygg.is. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 3, 3. hæð, hverfisarkitekt er Margrét Þormar, símatími 9 - 10 alla virka daga. Kynning hefst þann 14. sept. og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 28. sept. nk.
F.h. skipulags- og byggingarsviðs
Margrét Þormar