Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Urðarstígsreitur

Á fundi skipulagsráðs 21. nóvember sl. var lögð fram meðfylgjandi forsögn skipulagsstjóra dags. í nóvember 2007 að deiliskipulagi Urðarstígsreita.

Skipulagsráðs samþykkti að kynna forsögnina fyrir hagsmunaaðilum innan skipulagssvæðisins.

Skoða tillögu (PDF)

Til hagsmunaaðila á svæði sem markast af Urðarstíg, Njarðargötu, Bergstaðastræti og Baldursgötu, það eru staðgreinireitir 1.186.0 og 1.186.4, vinnuheiti "Urðarstígsreitir syðri"

Þegar byggingarleyfisumsóknir berast í þéttri byggð er mikilvægt að skoða heildaráhrif framkvæmda. Á lóðunum Urðarstíg 8A og 16A hafa byggingarleyfisumsóknir verið grenndarkynntar og bárust vegna þeirra beggja allmargar athugasemdir. Skipulagsyfirvöld vilja stuðla að uppbyggingu á þessum lóðum í samræmi við umhverfið, en lóðir eru litlar og nábýlið mikið. Því hefur verið ákveðið að vinna deiliskipulag að ofangreindum reitum. Unnin hefur verið forsögn að deiliskipulaginu, dags. nóvember 2007. Þegar tillaga liggur fyrir verður hún kynnt hagsmunaaðilum og loks verður unnin deiliskipulagstillaga, sem verður auglýst samkvæmt lögum.

Forsögn má einnig sjá á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is undir mál í kynningu eða í Borgartúni 3, 3ju hæð.

Hagsmunaaðilum er hér með gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum til skipulagsstjóra, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, eða á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 14. desember 2007.

Ábendingar verða skoðaðar í deiliskipulagsvinnunni og eftir atvikum teknar inn í tillögu.

Ef einhverjar spurningar vakna er þeim góðfúslega svarað á símatíma mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga milli kl. 9 og 10, eða í tölvupósti margret.thormar@reykjavik.is.

F.h. skipulagsfulltrúa

Margrét Þormar, arkitekt