Túngötureitur forsögn
Á fundi skipulagsráðs 12. desesmber voru lögð fram drög að forsögn fyrir Túngötureit. Samþykkt var að kynna forsögn fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.
Til hagsmunaaðila á svæði sem markast af Túngötu, Hofsvallagötu, Hávallagötu og Bræðraborgarstíg, það er á staðgreinireit 1.137.4, vinnuheiti "Túngötureitur". Til hagsmunaaðila teljast eigendur eftirfarandi húseigna, Túngata 31-51, ójafnar tölur, Bræðraborgarstígur 29 og 31 ásamt Hávallagötu 30-48, sléttar tölur.
Ákveðið hefur verið að vinna deiliskipulag að Túngötureit. Vinna þessi er liður í að ljúka við deiliskipulag reita í borginni, sem hafa ekki enn verið deiliskipulagðir. Tillaga er um svæðisbundna verndun.
Unnin hefur verið forsögn að deiliskipulaginu, dags. í desember 2007. Þegar tillaga liggur fyrir verður hún kynnt hagsmunaaðilum og loks verður unnin deiliskipulagstillaga, sem verður auglýst samkvæmt lögum. Forsögnin er til kynningar á heimasíðu sviðsins skipbygg.is undir mál í kynningu og í Borgartúni 3, 3ju hæð.
Skoða forsögn (PDF)
Hagsmunaaðilum er hér með gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum til skipulagsstjóra, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, og á netfangið skipulag@rvk.is fyrir 8. janúar 2008. Ábendingar verða skoðaðar í deiliskipulagsvinnunni og eftir atvikum teknar inn í tillögu.
Ef einhverjar spurningar vakna er þeim góðfúslega svarað á símatíma mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga milli kl. 9 og 10, Margrét Þormar, eða í tölvupósti margret.thormar@reykjavik.is.
F.h. skipulagsstjóra
Margrét Þormar, arkitekt