Skipulagssjá

Skipulagssjánni er ætlað að auka aðgengi almennings og framkvæmdaaðila að gildandi stefnumörkun borgaryfirvalda í skipulagsmálum. Skipulagsáætlanir eru sífelldum breytingum háðar og því mikilvægt að tryggja gott aðgengi að skipulagsáætlunum á stafrænu formi, þar sem nýjustu breytingar hafa verið færðar inn.

Vefsjáin er þrískipt. Fyrst er um að ræða glugga sem veitir aðgang að deiliskipulagi, staðfestu sem og tillögum sem eru í vinnslu eða kynningu. Annars vegar gluggi sem veitir aðgang að aðalskipulagi Reykjavíkur (AR2001-2024), þar sem finna má almennari stefnumörkun borgarstjórnar um skipulag borgarinnar í heild sinni og svo hins vegar gluggi sem veitir aðgang að svæðisskipulagi höfðuðbogarsvæðisins 2001-2024.

Einnig er veittur aðgangur í sjánni að nýjustu loftmyndum af borginni og í aðalskipulagsglugganum er hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um magn og gerð húsnæðis og fjölda íbúa á völdum svæðum.

Opna Skipulagssjá

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is