PBS


PBS grunnskólar

 

Markmið með PBS í grunnskóla er þríþætt; að mynda heildstæða stefnu jákvæðrar atferlis- og agastjórnunar í kennslu, uppeldi og námi, að viðmið um hegðun og nám í skólastarfi séu ljós nemendum, foreldrum og starfsfólki skóla og að starfa í samræmi við stefnu Menntasviðs. PBS verkefnið er aðlagað að hverjum skóla, menningu og styrkleikum sem fyrir eru. Mikilvægt er að a.m.k. 85% starfsmanna séu samþykkir því að ganga inn í verkefnið áður en ákvörðun liggur fyrir um það.  

 

Innleiðing/ferlið: Innleiðingarferli PBS í grunnskóla tekur þrjú til fimm ár. PBS teymi ber ábyrgð á innleiðingu PBS í skóla undir handleiðslu PBS handleiðara. Áhersla er á samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra, að álits og hugmynda sé leitað. Í innleiðingarferlinu ber teymið ábyrgð á að innleiða ákveðið efni og viðhalda því sem komið er. Innleiðingu er skipt upp eftir verkefnum sem þarf að sinna á hverju ári, undirbúningsár, fjögur framkvæmdarár og viðhald. Áhersla er á góðan og traustan grunn sem smám saman er byggt á. 

 

Mat á árangri fer fram jafnt og þétt yfir skólaárið og er nauðsynlegur hluti PBS.