PBS


Námskeið eru haldin eftir þörfum og óskum PBS skóla.

 

Kjarnanámskeið PBS byggir á bókinni "Til fyrirmyndar". Þegar skóli hefur ákveðið að vinna samkvæmt PBS situr teymi skólans námskeiðið sem PBS handleiðarar stýra. Á kjarnanámskeiði er farið yfir hugmyndafræði og grunnatriði nálgunarinnar. Kjarnanámskeið skiptist í fjóra flokka: Stuðningur við jákvæða hegðun í skólanum, bekkjarstjórnun, stuðningur við einstaka nemendur og samstarf við fjölskyldur.

 

Skólar geta óskað eftir námskeiðum þar sem farið er dýpra í ákveðna þætti s.s. kennslu hegðunar, virkt eftirlit, félagsfærni, virknimat, foreldrasamstarf fyrir alla starfsmenn eða ákveðna hópa eftir þörfum skólans.