Í leikskóla er lykilatriði að nota fyrirbyggjandi aðferðir, kenna og styrkja viðeigandi hegðun í stað þess að bregðast eingöngu við óæskilegri hegðun.
Þegar börn hefja grunnskólagöngu er ákveðin tilfinninga- og félagsfærni sem þau þurfa að búa yfir, s.s. sjálfstaust, geta til að mynda góð tengsl við félaga og fullorðna, einbeiting og úthald í erfiðum verkefnum, færni í að tjá tilfinningar, færni í að hlusta á leiðbeiningar og fara eftir þeim og færni í að leysa vandamál í samskiptum við aðra. Stigskipt nálgun í stuðningi við jákvæða hegðun í leikskólum byggir á því að stuðla að traustum tengslum, skapa umhverfi sem styður við jákvæða hegðun, kenna tilfinninga- og félagsfærni og skipulagi einstaklingsmiðaðra úrræða.