Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar

Hlutverk
Innkaupaskrifstofa annast öll útboðsmál fyrir hönd Reykjavíkurborgar þar með talið forvöl, útboð, verðfyrirspurnir, innkaup á vörum og þjónustu og verklegar framkvæmdir.

Skrifstofan hefur frumkvæði að stefnumótandi ákvörðunum um innkaupaferli í samvinnu við málaflokka. Skrifstofan leiðir þróunarstarf í innkaupamálum sem lítur að skipulagi innkaupa og einföldun innkaupaferla, sem lækka beinan og óbeinan innkaupakostnað Reykjavíkurborgar. Leiðir í þessu þróunarstarfi er m.a. innleiðing rammasamninga, rafrænna innkaupa og útboða með þátttöku allra sem stunda innkaup hjá Reykjavíkurborg.

Hvert svið Reykjavíkurborgar ber ábyrgð á að haga innkaupum í samræmi við innkaupastefnu og innkaupareglur borgarinnar (5. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar).

Útboðsgögn eru seld / afhent í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík alla virka daga frá kl. 8:20 - 16:00, sími 411 1111.

Heimilisfang:
Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar
Kennitala: 530269-7609
Borgartúni 12-14
105 Reykjavík

Faxnúmer: 411 1048
Netfang:  utbod@reykjavik.is
Veffang: www.reykjavik.is/utbod