Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Leiðarljós og hlutverk

Leiðarljós innkaupaskrifstofu:

Að finna hagkvæmustu lausnir í innkaupa- og útboðsmálum hjá Reykjavíkurborg og veita viðskiptavinum góða ráðgjöf og þjónustu.

Hlutverk og helstu verkefni skrifstofunnar:

Innkaupaskrifstofa annast öll útboðsmál fyrir hönd Reykjavíkurborgar þar með talið forvöl, útboð, verðfyrirspurnir, innkaup á vörum, þjónustu og verklegar framkvæmdir.

Skrifstofan hefur frumkvæði að stefnumótandi ákvörðunum um innkaupaferli í samvinnu við málaflokka, hún leiðir þróunarstarf í innkaupamálum sem m.a. lítur að frekari innleiðingu rammasamninga, rafrænna innkaupa og útboða með þátttöku allra sem stunda innkaup hjá Reykjavíkurborg.

Skrifstofan gætir þess að innkaup Reykjavíkurborgar séu í samræmi við lög og reglur sem um innkaup gilda. Skipulag innkaupa á að tryggja skilvirkari innkaup, lægri rekstrarkostnað fyrir borgina í heild sinni, einfaldari innkaupaferla sem lækka óbeinan innkaupakostnað einstakra sviða og rekstrareininga. Skrifstofan annast gerð samninga og pantana á þessu sviði og veitir þjónustu, ráðgjöf og fræðslu í tengslum við innkaup og innkaupaaðferðir.