Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Innkauparáð

Innkauparáð starfar í umboði borgarráðs skv. samþykkt fyrir ráðið sem staðfest var í borgarstjórn 20. desember 2005, sbr. einnig innkaupareglur Reykjavíkurborgar sem samþykktar voru í borgarráði 23. september 2010 og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007.

Innkauparáð mótar stefnu í innkaupamálum Reykjavíkurborgar og gerir tillögur til borgarráðs þar að lútandi. Það hefur eftirlit með því að innkaupastefnu Reykjavíkurborgar og innkaupareglum sé fylgt af hálfu borgarsjóðs og stofnana hans, sem og lögum um framkvæmd útboða nr. 65/1993 og lögum um opinber innkaup nr. 84/2007, eftir því sem við á. Þá tekur ráðið ákvarðanir í tilteknum innkaupamálum, sbr. nánar innkaupareglur Reykjavíkurborgar.

Í innkauparáði eiga sæti þrír fulltrúar og jafnmargir til vara, kosnir af borgarstjórn. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa í ráðinu. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aðsetur ráðsins er í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ráðið heldur að jafnaði fundi á miðvikudögum kl. 12.15.

Borgarstjórn kaus í innkauparáð 15. júní 2010:

Kjörnir: Til vara: 
Barði Jóhannsson S. Björn Blöndal
Kjartan Valgarðsson, formaður Stefán Jóhann Stefánsson
Jórunn Frímannsdóttir Rúna Malmquist

Innkaupaskrifstofa sér um þjónustu við Innkauparáð Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Eggertsdóttir í síma 411 1042, netfang: gudbjorg.eggertsdottir@reykjavik.is