Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ráðhús / Tjarnarsalur

Tjarnarsalur Ráðhússins er salur fólksins, Reykvíkinga og gesta borgarinnar jafnt innlendra sem erlendra.  Hann er hluti af opnu rými Ráðhússins sem ætlað er almenningi og er  að vissu leyti andlit borgarinnar. Í Tjarnarsalnum er Íslandslíkan staðsett og þangað kemur stór hluti ferðamanna sem heimsækja Reykjavík. Hússtjórn starfar eftir þeirri meginreglu að Íslandslíkanið sé að jafnaði til sýnis í öðrum helmingi Tjarnarsalar og sýningar og aðrir viðburðir séu staðsettir í hinum hluta salarins. Í sérstökum tilvikum getur verið gerð undantekning frá þessari reglu.

Tjarnarsalurinn er lánaður eða leigður út fyrir fjölþætta starfsemi og er þar helst um að ræða: Sýningar, fundi, ráðstefnur, kynningar, móttökur og menningarviðburði.

Allar nánari upplýsingar gefur Ingi Thor Jónsson rekstrar- og viðburðastjóri í síma 4114500,  netfang: ingi.thor.jonsson@reykjavik.is.


Húsaleiga.pdf.

Umsóknareyðublað sem Word skjal.