Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Vistvæn innkaup

Stefna Reykjavíkurborgar er sú:
a) að sjónarmið umhverfisverndar verði höfð að leiðarljósi í rekstri, stjórnun og uppbyggingu
    borgarinnar,
b) að gæta sparsemi og nýtni í rekstri borgarinnar í anda vistvænnar innkaupastefnu.

Vistvæn innkaupastefna hefur verið að ryðja sér til rúms víða erlendis. Vistvæn innkaupastefna felur það í sér að við innkaup, framleiðslu og þjónustu skuli gera ákveðnar kröfur um gæði, verð, starfslag og framleiðsluaðferðir.  Almennt fela þessar kröfur í sér að vöruflokkarnir, framleiðslan og þjónustan skuli vera umhverfis- og auðlindavæn ásamt því að vera nýtin á orku.  Í stuttu máli má segja að vistvæn innkaup séu aðeins frekari útfærsla á kröfunni um lágmarksverð og hámarksgæði. Dæmi um vistvæn innkaup sveitarfélags eru eftirfarandi:

Innkaup
• á vistvænum matvælum,
• á umhverfisvænu byggingarefni,
• á umhverfismerktum vöruflokkum,
• á vörum sem eru endurvinnanlegar eða endurnýtanlegar,
• á vörum í vistvænum umbúðum,
• frá vistvænum fyrirtækjum,
• á vörum sem nota litla orku eða aðrar mikilvægar auðlindir,
• á hágæða varanlegum neysluvörum eða þeim sem endast lengur,
• á þjónustu sem felur í sér litla ferðaþörf og notar helst vistvænan ferðamáta.

Mikilvægt er að sveitarfélög hafi frumkvæði í þessu máli enda er það hvatning til almennings og fyrirtækja um sambærileg innkaup. Vistvæn innkaupastefna sveitarfélaga hefur því mjög jákvæð áhrif á þróun markaða með umhverfisvænar vörur og þjónustu.  Til lengri tíma litið hefur það jákvæð áhrif á samfélagið bæði staðbundið og hnattrænt.
Innkaupaskrifstofa starfar með umhverfissviði um mótun vistvænnar innkaupastefnu samkvæmt áætlun í Staðardagskrá 21.