Frístundakortið
Frístundakortið nánari upplýsingar að finna hér.
Ballettskóli Eddu Scheving
Ballettskóli Eddu Scheving sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett. Markmið skólans er að veita nemendum góða þjálfun og kennslu. Áhersla er lögð á fjölbreyttar æfingar, tæknivinnu, jafnvægisæfingar o.fl. Nemendur kynnast ýmsum dansformum og tónlist. Dansinn er listform þar sem listamaðurinn er efniviðurinn og krefst klassískur listdans margra ára þjálfunar. Fyrst og fremst hefur skólinn lagt áherslu á að leyfa nemendum að njóta dansins og dansgleðinnar í öllum sínum myndum.
Ballettskóli Eddu Scheving.
Frístundamiðstöðin Gufunesbær
Frístundamiðstöðin Gufunesbær var stofnuð haustið 1998 og er rekin af Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Vettvangur starfsemi Gufunesbæjar er frítími allra Grafarvogsbúa, en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf. Áhersla er lögð á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf en Gufunesbær hefur m.a. umsjón með öllum sjö félagsmiðstöðvunum í Grafarvogi og átta frístundaheimilum við alla grunnskóla í Grafarvogi.
Frístundamiðstöðin Gufunesbær.
Íþróttafélagið Ösp
Íþróttafélagið Ösp var stofnað 18. maí 1980 af foreldra- og kennarafélagi Öskjuhlíðarskóla, með stuðningi frá Íþróttasambandi fatlaðra. Stofnfundurinn fór fram á Þingvöllum, þar sem mættu foreldrar og nemendur til veislu í Valhöll. Markmið Íþróttafélagsins Aspar er að standa fyrir íþróttaæfingum hjá félögunum, með sem fjölbreyttustum hætti, þeim til heilsubótar og ánægju og þátttöku í íþróttamótum, þar sem hæfni hvers og eins nýtur sín sem best.
Íþróttafélagið Ösp
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Myndlistaskóli Reykjavíkur er með námskeið á Korpúlfsstöðum og eru námskeið skólans opin öllum almenningi og miðast ýmist við byrjendur eða lengra komna. Boðið er upp á valáfanga á framhaldsskólastigi í teikningu, málun, form- og litafræði og keramik. Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á myndlistarkennslu fyrir börn og unglinga. Verkefni í barna- og unglingadeild eru fjölbreytt og miðast við þroska nemenda.
Myndlistaskóli Reykjavíkur.
Skátafélagið Hamar
Í Grafarvogi fer fram mikið og öflugt skátastarf. Skátarnir hittast vikulega á skátafundum þar sem þau vinna í flokkum 5-8 saman og vinna að skemmtilegum verkefnum, syngja, fara í leiki o.fl. Yngstu krakkanir starfa í stærri hópum þar sem áherslan er lögð á leiki og spennandi viðfangsefni. Reglulega fara svo skátar í ferðir og þá bæði stuttar dagsferðir, útlegur í skála að vetri og skátamót á sumrin.
Skátafélagið Hamar.
Skólahljómsveit Grafarvogs
Skólahljómsveit Grafarvogs var stofnuð 1993 og hefur aðalaðsetur í Foldaskóla. Hún þjónar öllum grunnskólum Grafarvogs. Hljómsveitaræfingar fara fram í Foldaskóla en kennt er í einkatímum í fleiri skólum, háð húsnæði og nemendasamsetningu.
Skólahljómsveit Grafarvogs.
Tangóævintýrafélagið
Tangóævintýrafélagið var stofnað í nóvember 2006. Tilgangur félagsins er að standa fyrir vímulausum viðburðum þar sem fólk kemur saman og dansar tangó.
Tangóævintýrafélagið.
Tónlistarskólinn í Grafarvogi
Tónlistarskólinn í Grafarvogi hóf göngu sína árið 1991.
Markmið skólans er að efla vitund og þekkingu barna á tónlist og auka almenna iðkun tónlistar.
Mikil áhersla er lögð á samspil nemenda og hafa margvíslegir samspilshópar og hljómsveitir verið starfræktir á vegum skólans. Þá ber helst að nefna þjóðlagasveitina undir stjórn Wilmu Young sem komið hefur fram við ýmis tækifæri bæði hérlendis og erlendis. Auk þjóðlagasveitarinnar hefur kammersveit eldri nemenda verið starfrækt undir stjórn Eyjólfs Bjarna Alfreðssonar lágfiðluleikara. Einnig er starfandi harmonikusveit, stjórnandi hennar er Guðmundur Samúelsson.
Tónleikahald hefur verið öflugt allt frá stofnun skólans og hafa nemendur skólans ávallt verið hvattir til að taka virkan þátt í flutningi tónlistar fyrir áheyrendur.
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl:12:30 til 16:30 frá 20.ágúst til 4. júní. Sími á skrifstofu er 567 6680, fax 587 6680 og netfang sarna@simnet.is
Tónlistarskólinn í Grafarvogi.
Tónskóli Björgvins Þ. Valdimarssonar í Hamraskóla
Tónskóli Björgvins Þ. Valdimarssonar í Hamraskóla
Tónskóli Björgvins hóf samstarf við Hamraskóla haustið 2007. Kennslan fer fram á skólatíma, þannig að nemendur í einkatíma í hljóðfæraleik fá að fara út úr kennslustundum til að sækja tónlistartíma. Í kennslunni er lögð áhersla á að gera nemendur jafnhæfa til að spila eftir nótum, að spila laglínur eftir eyranu (eftir minni) og að lesa hljómabókstafi og vinna með þá. Kennt er á eftirtalin hljóðfæri: Blokkflautu (hóptímar fyrir 7 ára nemendur), píanó, gítar, trompet, harmoníku og söng. Fyrirspurnir og námsumsóknir má senda á netfangið bjorgvinva@simnet.is og í síma 861 1255.
Tónskóli Björgvins.
Tónskóli Hörpunnar
Tónskóli Hörpunnar er almennur tónlistarskóli. Þar er kennt á flest hljóðfæri. Hann er opinn öllum aldurshópum.
Höfuðstöðvarnar eru að Bæjarflöt 17 (í Rimahverfi), en kennsla fer einnig fram á grunnskólatíma í eftirfarandi skólum: Korpuskóla, Borgaskóla, Víkurskóla, Engjaskóla, Húsaskóla, Ártúnsskóla og Álftamýrarskóla.
Boðið er upp á einkakennslu og samkennslu (tveir í tíma), en forskólanemendur (blokkflautunemendur) eru 5 til 6 saman í hóp.
Skólinn hóf starfsemi í Grafarvogshverfi haustið 1999 og hefur vaxið jafnt og þétt. Vorið 2007 stunduðu 293 nemendur nám í skólanum.
Sótt er um nám í skólanum á vef Reykjavíkuborgar Rafræn Reykjavík.
Tónskóli Hörpunnar.
Tónvinnsluskóli Þorvaldar Bjarna
Nú býður Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna upp á námskeið í hjarta Grafarvogs í Foldaskóla. Í boði eru gítarnámskeið fyrir byrjendur, lengra komna, foreldra og leikskólakennara þar sem áhersla er lögð á hagnýta 12 vikna kennslu. Einnig er hægt að fara á söng- og framkomunámskeið, blues- og jazzsöngnámskeið auk barna og unglinganámskeiða í öllu ofangreindu. Tónlistarsköpunar- og hljóðritunarnámskeið barna og unglinga verða einnig kennd.
Tónvinnsluskóli Þorvaldar Bjarna.