Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Hverfislögregla

Hlutverk hverfislögregluþjóns er að vera í góðum tengslum við íbúa sinna hverfa og svæða. Hverfislögregluþjónn fundar reglulega með fulltrúum skóla, þjónustumiðstöðva, barnaverndar og félagsmiðstöðva og er einnig í samstarfi við hverfasamtök, félög og ýmsar stofnanir í borgarhlutanum. Einnig er hverfislögregluþjónn í sambandi við foreldrafélög grunnskólanna og foreldraröltið. Á þennan hátt er hverfislögregluþjónn í sambandi við lykilaðila í borgarhlutanum. Þegar upp koma mál í borgarhlutanum, s.s. vegna vímuefnaneyslu, eineltis, skemmdarverka eða annars, kemur hverfislögregluþjónn oft að lausn mála. Þá fer hverfislögregluþjónn í skólana til að ræða við og fræða börn og foreldra um ýmis málefni og til að leysa vandamál sem þar koma upp.

Hverfislögregluþjónn rannsakar mál ósakhæfra barna í borgarhlutanum, en þau mál þarf að rannsaka og upplýsa eins og önnur mál, þótt börnunum verði ekki refsað. Þá geta hverfislögregluþjónar oft veitt rannsóknardeildunum aðstoð vegna staðarþekkingar sinnar og er hægt að nefna mörg dæmi um alvarleg mál sem þannig hafa verið upplýst. Þá hafa hverfislögregluþjónar náið samstarf við barnaverndaryfirvöld, ekki síst í sambandi við börn með vímuefnavanda enda mikið um að foreldrar leiti til hverfislögregluþjóna eftir upplýsingum og ýmiss konar aðstoð.

Hverfislögregluþjónn fer reglulega í eftirlit um borgarhlutann til að fylgjast með útivistartíma og hvort hópasöfnun eigi sér stað og einnig til að fylgjast með almennu ástandi í hverfinu. Þá fylgist hann einnig vel með tíðni afbrota í hverfinu og metur hvað helst er til úrbóta. Þegar upp koma vandamál vegna óæskilegra hópamyndana er það gjarnan hverfislögregluþjónn sem best er í stakk búinn til að greina og leysa slík vandamál. Hverfislögregluþjónn vinnur yfirleitt einkennisklæddur og ekur á merktri lögreglubifreið. Þannig er hann vel sýnilegur enda er fólk ánægt með að sjá lögregluna á ferð.

Svæðisstöð lögreglunnar í Laugardal og Háaleiti er á Hverfisgötu 113-115. Stöðin er opin allan sólarhringinn. Hverfislögregluþjónn er Guðrún Jack.

Nánari upplýsingar um hverfislögreglu má finna á www.logreglan.is

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is