Fjöldi fólks á öllum aldri hefur fundið sér félagsstarf við sitt hæfi. Vettvang þar sem það ýmist fær útrás fyrir hreyfiþörf sína eða þörfina til félagslegs samneytis við aðra. Að taka þátt í margvíslegu félagsstarfi eflir félagsþroska barna, þar læra þau að takast á við framandi aðstæður, gleði, mótlæti og kynnast sjálfum sér betur, sínum styrkleikum og veikleikum. Því er mikilvægt að hvert mannsbarn finni sér áhugamál sem er í senn þroskandi og skemmtilegt.
Í Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi er að finna eina helstu miðstöð íþróttalífs á Íslandi. Þar starfar fjöldi íþróttafélaga sem bjóða upp á mikið úrval tækifæra til íþróttaiðkunar. Laugardalurinn er helsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og eru þar kynstrin öll af útivistar- og líkamsræktarmöguleikum, s.s. fyrir göngur, skokk, tennis, borðtennis, sund, skauta, íshokkí, fótbolta, handbolta, karate, kajakróður, köfun, glímu, júdó, kraftlyftingar og fimleika auk annarra greina.
Í meðfylgjandi skjali er að finna umfjöllun um það íþrótta- frístundastarf sem stendur börnum, ungmennum og fullorðnum einstaklingum til boða í hverfunum.
Blómlegt frístundastarf - PDF skjal (482 KB).