Þjónusta við eldri borgara í Vesturbæ

Félagsstarf

Í Vesturbæ er félagsmiðstöð á Aflagranda 40, sími 411-2700.  Þar er í boði fjölbreytt starfssemi frá kl. 09:00 til kl. 16:15 alla virka daga. Smelltu hér til að sjá meira um Aflagranda 40.

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki annast heimilishald eða persónulega umhirðu.Þjónustan er margbreytileg og reynt era ð mæta þörfum hvers og eins.Félagslegur stuðningur, hvatning og samvera eru mikilvægir þættir í starfinu.Jafnframt aðstoðar starfsfólk við almenn heimilisstörf svo sem heimilisþrif. 

Sótt er um félagslega heimaþjónustu í Vesturgarði.

Nánari upplýsingar um félagslega heimaþjónustu með þvísmella hér.  að

Heimsendur matur

Þeir sem ekki geta annast matseld sjálfir geta sótt um að fá heimsendan mat.Sótt er um í Vesturgarði með því að fylla út umsókn þar eða á rafrænu Reykjavík.
Hægt er að nálgast matseðil vikunnar með því að smella hér.


Akstursþjónusta

Reykvíkingar 67 ára og eldri sem búa í heimahúsum geta fengið akstursþjónustu ef þeir eru ófærir um að nota almenningssamgöngur og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.Sótt er um akstursþjónustu í Vesturgarði með því að fylla út umsókn þar eða á rafrænu Reykjavík.

Þjónustuíbúðir

Þjónustuíbúðir eru ætlaðar fólki sem þarf meiri aðstoð og stuðning en hægt era ð veita í heimahúsum en heilsufar er ekki orðið það slæmt að þörf er á hjúkrunarheimili.

Sótt er um þjónustuíbúð í Vesturgarði með því að fylla út umsókn þar eða á rafrænu Reykjavík.

Dagvist fyrir aldraða

Í Vesturbæ er rekin dagvist fyrir aldraða í Þorraseli, Þorragötu 3, sími 561-2828.Deildastjóri Þorrasels tekur við umsóknum og veitir nánari upplýsingar.

Vistunarmat fyrir dvalar- og hjúkunarheimili

Dvalar- og hjúkrunarheimili eru fyrir þá sem geta ekki búið sjálfsætt.Sótt er um vistunarmat í Vesturgarði með því að fylla út umsókn þar eða á rafrænu Reykjavík.

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun.

Íbúar í Vesturbæ geta leitað eftir upplýsingum og ráðgjöf í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarði, varðandi ýmis mál, s.s. fjármál, tryggingabætur, húsnæðisúrræði, vistunarmat og stuðning.  Ráðgjöfin er ókeypis.  Vesturgarður er við Hjarðarhaga 45-47 og síminn þar er 411-1700

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is