Hverfastöðvar
Framkvæmdasvið rekur hverfastöðvar sem sinna ýmsum verkefnum og þjónustu við íbúana í viðkomandi hverfum. Borgarbúar geta leitað til hverfastöðvanna með ábendingar og athugasemdir um hvaðeina er varðar götur, gönguleiðir, opin svæði, snjómokstur, hreinsun, grasslátt og fleira
Hverfastöð Miklatúni við Flókagötu, sími 411 8430, netfang miklatun@reykjavik.is
Stöðin þjónar austurbænum. Rekstrarstjóri er Gunnar Ágústsson.
Hverfastöðin er opin mánudaga-fimmtudaga kl. 7.30-16.25 og föstudaga kl. 7.30-15.25.
Hver hverfastöð sinnir eftirfarandi verkefnum á sínu svæði:
- Viðhald malbikaðra og hellulagðra hraðahindrana.
- Viðhald þrenginga, umferðareyja og 30 km hliða.
- Viðhald göngustíga, gangstétta, kantsteina og áningarstaða.
- Peruskipti og hreinsun umferðarljósa, hreinsun skilta, vegvísa og skiltabrúa.
- Hreinsun og viðhald ruslastampa.
- Grassláttur og grasviðgerðir.
- Viðhald girðinga, leikvalla og leiktækja.
- Vorhreinsun opinna svæða.
- Þjónusta við vinnuskólann og ellilífeyrisþega.
- Áramótabrennur, uppsetning og hirðing jólatrjáa.
- Snjómokstur, hálkueyðing og hreinsun niðurfalla.
- Málun og stærri viðgerðir brúa og undirganga, hreinsun veggjakrots.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu framkvæmdasviðs.