Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Skipulag byggðar og samgöngur

Ferðavenjur

Ferðavenjur í borgum mótast af því borgarskipulagi sem er við lýði hverju sinni. Skipulag landnotkunar, þéttleiki byggðar og ríkjandi samgönguskipulag ráða mestu um val á ferðamáta innan borga. Reykjavík er ung borg sem fyrst og fremst hefur byggst upp á 20. öld þegar einkabílinn varð almenningseign og aðalfaratæki borgarbúa.

Breyting á ferðavenjum er langtímaverkefni sem kallar á margvíslegar aðgerðir. Einn mikilvægasti þátturinn í slíkum aðgerðum felst í áherslum í skipulagi byggðarinnar; að þétta byggðina, stuðla að blöndun landnotkunar og skipuleggja hverfin með vistvænar ferðavenjur að leiðarljósi. Þessir þættir munu hafa áhrif þegar til lengri tíma er litið og búa í haginn fyrir öflugar almenningssamgöngur og fjölbreyttar samgöngur. Þær aðgerðir sem hafa mest áhrif á ferðavenjur eru t.a.m. aukinn forgangur almenningsvagna í umferðarkerfinu, bætt skilyrði fyrir gangandi og hjólandi og fræðsla og hvatning til íbúa um að skipta yfir í vistvænni og heilsusamlegri ferðamáta.

Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum unnið ötullega að þessum málum. Það endurspeglast m.a. í samþykkt samgöngustefnu árið 2006, loftslags- og loftgæðastefnu árið 2009, samgöngustefnu starfsmanna borgarinnar árið 2009, gerð hjólreiðaáætlunar og almennt í grænum skrefum Staðardagskrár 21. Fleiri þættir hafa verið til skoðunar, s.s. bílastæðastefna, fjölgun hjólreiðastíga og vistgötur. Öll þessi verkefni eru liðir í því að breyta ferðavenjum í Reykjavík.

Í nýju aðalskipulagi þarf að huga að öllum þessum þáttum og tryggja framgang þeirra enn frekar. Við mótun stefnu aðalskipulagsins er lykilatriði að samtvinna stefnu um samgöngur við stefnu um landnotkun, þéttleika og gæði byggðar. Of stór hluti borgarlandsins fer undir götur og samgöngumannvirki. Sú staðreynd undirstrikar mikilvægi þess að meta götur ekki eingöngu sem samgönguæðar heldur einnig sem hluta af almenningsrými borgarinnar.