Vatnsmýri

Í Vatnsmýri felst mikilvægur valkostur fyrir þróun Reykjavíkur. Stefna gildandi aðalskipulags 2001-2024 gerir ráð fyrir því að flugvöllurinn verði lagður niður í framtíðinni. Í samræmi við þá stefnu var efnt til hugmyndasamkeppni um byggð í Vatnsmýri. Niðurstöður hennar lágu fyrir í byrjun árs 2008 og er vilji til þess að framtíðarbyggð í Vatnsmýri taka mið af vinningstillögunni.
Mótun stefnu í nýju aðalskipulagi mun einkum snúa að því að ákvarða landnotkun í Vatnsmýri og tímasetningar í því sambandi. Framhaldsathuganir ríkis og borgar um möguleg flugvallarstæði munu væntanlega leiða í ljós hvort nýtt flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu verði hluti af tillögu að nýju aðalskipulagi og breyttu svæðisskipulagi.