Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Örfirisey og Gamla höfnin

Örfirisey og gamla höfnin

Lengi vel voru hafnarsvæðin, líkt og önnur atvinnusvæði, samofin annarri byggð í borginni. Með breyttum atvinnuháttum voru tengsl hafnarinnar við aðra byggð smátt og smátt rofin. Á sama tíma hafa hafnarsvæðin stækkað og sérhæfst. Ný hafnarsvæði hafa tekið við hlutverki eldri svæða. Með breyttu hlutverki Gömlu hafnarinnar hafa skapast ný tækifæri í þróun miðborgarinnar. Mögulegt er að endurheimta fyrri tengsl miðborgar og hafnar.

Á undanförnum árum hafa skipulagsyfirvöld í Reykjavík og Faxaflóahafnir unnið að skipulagi á eldri hafnarsvæðunum í miðborginni. Stækkun miðborginnar út í Austurhöfn, með byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss er stærsta verkefnið. Einnig hefur verið unnið að endurskipulagningu Slippasvæðis og mikil gerjun hefur verið í þróun byggðar í Örfirisey.

Til að fá fram heildarsýn á Gömlu höfnina og Örfirisey, tengsl hafnarsvæðanna innbyrðis og við miðborgina og Vesturbæinn, hafa Faxaflóhafnir efnt til hugmyndasamkeppni um heildarskipulag svæðisins. Aldrei áður hefur verið gert heildarskipulag fyrir þetta svæði sem þó er mjög mikilvægt fyrir heildarmynd borgarinnar. Verðlaunaðar tillögur verða mikilvægt innlegg í endurskoðun aðalskipulagsins.