Elliðaárvogur

Áherslur í nýju aðalskipulagi miða að því að þróun byggðar og samgangna séu í anda sjálfbærrar þróunar. Svæðin í Ártúnshöfða búa yfir miklum kostum vegna staðsetningar í borginni og nálægðar við ósa Elliðaáa, Elliðaárdalinn og Grafarvoginn. Landfrek athafnastarfsemi með lágri nýtingu lóðaog mis þrifaleg iðnaðarstarfsemi þykir ekki sæma svæðinu þegar til lengri tíma er litið. Stefna gildandi aðalskipulags gerir ráð fyrir því að landnotkun á svæðinu breytist í blandaða byggð íbúða, þjónustu og þrifalegrar atvinnustarfsemi. Bryggjuhverfið við Grafarvog gefur tóninn um þróun svæðisins
Stýrihópur um gerð rammaskipulags fyrir Elliðaárvog og nágrenni hefur verið starfandi undanfarin misseri. Markmið með rammaskipulaginu er að setja fram sýn um uppbyggingu svæðisins og tengsl þess við nærliggjandi svæði. Hugmyndir eru um fjölbreytta og þétta byggð þar sem tekið er tillit til staðsetningar í borginni, landgæða, opinna svæða og nálægðar við stofnbrautir.
Nýtt aðalskipulag mun gera ráð fyrir nýju iðnaðarsvæði og iðnaðarhöfn, ásamt athafnasvæðum fyrir landfreka starfsemi, sem geta tekið við þeim fyrirtækjum sem þurfa að víkja fyrir nýrri borgarbyggð í Ártúnshöfðanum.