Álfsnes

Við stofnun Faxaflóahafna árið 2005 var tekin stefnumarkandi ákvörðun um að breyta landnotkun í Geldinganesi, þannig að þar risi einkum íbúðarbyggð en horfið frá áformum um stórskipahöfn. Með þeirri ákvörðun skapast þörf fyrir ný iðnaðar- og athafnasvæði í Reykjavík sem hafa tengsl við höfn. Stefnumörkun aðalskipulagsins um breytta landnotkun í Ártúnshöfða og við Elliðaárvog gerir það að verkum að finna þarf ýmsum iðnaðarfyrirtækjum nýjan stað. Flest þessara fyrirtækja er háð nálægð við höfn.
Að mati Faxaflóahafna er vænlegasta svæðið fyrir nýja iðnaðarhöfn vestast á Álfsnesi við Kollafjörð.Með byggingu iðnaðarhafnar á Álfsnesi skapast aftur forsendur fyrir því að þróa umfangsmeiri iðnaðar- athafnasvæði á Álfsnesi, sem geta mætt þeirri þörf sem verður með stefnubreytingunni fyrir Geldinganes. Óhagstæð veðurskilyrði, hrjóstrugt land og nálægð við núverandi vinnslusvæði Sorpu gera það að verkum að íbúðarbyggð eða blönduð byggð á vestan- og norðanverðu Álfsnesi er ekki fýsilegur kostur. Það eru því margvísleg rök sem mæla með því að vestan- og norðanvert Álfsnes verði þróað sem iðnaðar- og athafnasvæði. Áframhaldandi vinnsla sorps og úrgangs Sorpu á svæðinu verður með því ásættanlegri og fórnarkostnaður borgarinnar, í formi frestunar á nýtingu lands, óverulegri.