Miðborgin

Miðborgin er helsta aðdráttarafl Reykjavíkur og „andlit“ borgarinnar. Efling miðborgarinnar er því leiðarljós í allri stefnumörkun borgaryfirvalda. Aukin umhverfisgæði í miðborginni er megin markmið við endurskoðun aðalskipulagsins.
Þessar áherslur endurspeglast í vinnu við sérstaka borgar- og húsverndarstefnu, stefnu um gæði og yfirbragð byggðar, háhýsastefnu og stofnun vinnuhóps um endurskoðun þróunaráætlunar miðborginnar. Leiðarljósið er að tryggja varðveislu byggingararfsins og þeirra umhverfisgæða sem í honum eru fólgin, skapa fjölbreytni og gera miðborgina lifandi og skemmtilega.
Jafnhliða þessu er lögð áhersla á að styrkja miðborgina með fjölgun íbúa og starfa, í miðborginni sjálfri og baklandi hennar. Þétting borgarinnar og endurskipulagning eldri byggðar þarf ávallt að vera í samræmi við stefnu um gæði byggðar; um gæði í skipulagi og hönnun nýrrar byggðar og um viðhald umhverfisgæða í aðliggjandi eldri byggð. Markmiðið er að skapa sátt um verndun og uppbyggingu í miðborginni.