Geldinganes

Í aðalskipulaginu 2001-2024 var gert ráð fyrir því að gerð yrði stórskipahöfn í Geldinganesi og að stærsti hluti svæðisins yrði iðnaðar- og athafnasvæði. Með stofnun Faxaflóahafna árið 2005 var tekin stefnumarkandi ákvörðun um að breyta landnotkun í Geldinganesi, þannig að þar risiblönduð byggð en horfið frá áformum um stórskipahöfn. Í samræmi við það er nú gert ráð fyrir íbúðarbyggð í Geldinganesi í bland við verslun, þjónustu og létta atvinnustarfsemi. Áætlaður fjöldi íbúða á svæðinu gæti verið allt að 3000. Leiðarljós við mótun skipulags á Geldinganesi er að byggðin taki mið af sólaráttum, ríkjandi vindáttum, útsýni og staðsetningu við sjávarsíðuna.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er stefnt að því gera um 50 ha landfyllingu við Gufunes þar sem risi blönduð byggð, allt að 3000 íbúða auk atvinnuhúsnæðis, við sjávarsíðuna. Staðsetning byggðarinnar við Sundin og Viðey er einstök og með tilkomu Sundabrautar verður hún mjög vel staðsett gagnvart miðborginni og öðrum borgarhlutum. Umfang landfyllingar, form hennar og magn byggðar við Gufunes verða tekin til skoðunar í aðalskipulagsvinnunni í samhengi við skipulag blandaðrar byggðar í Geldinganesi.