Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Úlfarsárdalur

Úlfarsárdalur

Skipulag íbúðarhverfa í Úlfarsárdal byggir í megin atriðum á tillögu að rammaskipulagi fyrir Úlfarsárdal frá árinu 2001. Nokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á rammaskipulaginu undanfarin misseri. Áætlað er að Úlfarsárdalurinn fullbyggður rúmi um 10.000 íbúa.

Markmiðið er að skipuleggja nokkuð þétta byggð og blanda saman íbúðum og atvinnustarfsemi eins og kostur er. Vistvænar lausnir verða hafðar að leiðarljósi og skipulagið grundavallað á náttúrulegum kostum svæðisins. Stefnan er að skapa byggð með fjölbreyttu framboði íbúða í fjölbýli og sérbýli og skjólgóðum útirýmum. Lögð er áhersla á að skólar og þjónustustofnanir séu í göngufæri við íbúðir og sem flest atvinnutækifæri verði innan hverfis. Með því móti er reynt að draga úr tíðni lengri ferða og mynda líflegt borgarumhverfi.

Á svæðinu er einstök náttúrufegurð, útsýni, fjallasýn og mikil nálægð við útivistarsvæði í stórum skala, fjallið, heiðina, dalinn og ána. Einnig er um að ræða síðasta byggingarsvæðið í Reykjavík í suðurhlíðum, sem bíður upp á mikla möguleika á að skapa framúrskarandi borgarumhverfi.

Nýtt aðalskipulag mun væntanlega ekki fela í sér miklar breytingar fyrir Úlfarsárdalinn. Aðalskipulagið mun þó skerpa á stefnu um uppbyggingu þjónustukjarnans við Leirtjörn, mörk og skipulag skólahverfanna, framboð húsagerða og yfirbragð byggðar.


 

sendu okkur hugmynd