Framtíðarsýn fyrir íbúðahverfið
25.05.2010
Upplestur á frétt 
Þann 20. apríl var haldinn vinnudagur með yfirskriftinni „Framtíðarsýn fyrir íbúðahverfið“. Áherslan var á íbúðarhverfið út frá félagslegum sjónarmiðum, m.a gerð skólahverfa, framboði íþrótta- og frístundastarfsemi og annara þjónustuhátta, gerð þjónustu- og verslunarkjarna, blöndun og framboð húsagerða og almennt um aðgerðir til að skapa lífvænlegt og fjölbreytt íbúðarhverfi.
Stefnumörkun um framtíð og þróun íbúðahverfis er eitt af megin verkefnum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur sem stendur nú yfir.
Til vinnudagsins var boðið fjölmörgum fagaðilum, fulltrúum félagasamtaka og hagsmunahópa sem og aðilum sem hafa tekið virkann þátt í umræðu um skipulag og framtíð borgarinnar. Afrakstur vinnudagsins er innlegg í mótun stefnu um íbúðarsvæði og þéttingu byggðar í nýju aðalskipulagi.
Hér má sjá afrakstur vinnudagsins á PDF:Íbúðarhverfið
