Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


 

Umhverfi og útivist

Nauthólsvík

Umhverfi og útivist er málaflokkur sem fjallar annars vegar um heildarstefnu fyrir útivistarsvæði og verndarsvæði borgarinnar og hins vegar um ýmsar stefnur í umhverfismálum sem hafa áhrif á stefnumörkun aðalskipulagsins með einum eða öðrum hætti. Útivistarsvæði borgarinnar eru fjölbreytt og margbrotin og gott aðgengi að þeim er einn af lykilþáttum þess að borgarbúar fái notið þeirra lífsgæða að stunda útivist og afþreyingu á aðgengilegum og fjölbreyttum útivistarsvæðum.

Í hugmyndafræði um sjálfbæra þróun samfélagsins þar sem þörfum dagsins í dag er mætt án þess að spilla fyrir komandi kynslóðum er litið á opin svæði sem auðlind og andrými borgarinnar sem nauðsynlegt er að vernda og viðhalda með ýmsum aðgerðum. Slíkar aðgerðir þurfa að þjóna margvíslegum þörfum borgarbúa og mótast af ríkjandi byggðamynstri og skipulagi.

Staðardagskrá 21 er unnin í samræmi við ályktun Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um að stuðla að framgangi sjálfbærar þróunar í heiminum.Staðardagskrá fyrir Reykjavík var samþykkt í borgarstjórn árið 2006.